KR-ingar eru komnir á topp Bónus deildar karla eftir magnaðan 102–94 útisigur á Álftanesi í uppgjöri tveggja af fremstu liðum deildarinnar. Þar fór Lettinn Linards Jaunzems fyrir sínum mönnum með stórkostlegri frammistöðu sem skilaði honum nafnbótinni lykilleikmaður 5. umferðar.
Jaunzems lék í tæpar 32 mínútur og var óstöðvandi í teignum. Hann endaði leikinn með 26 stig og hitti úr 61% tveggja stiga skota sinna (8 af 13), auk þess að sýna gríðarlega seiglu á vítalínunni þar sem hann nýtti 10 af 12 skotum sínum.
Baráttugleði hans undir körfunni var til fyrirmyndar en hann reif niður 9 fráköst – þar af heil 6 í sókninni – fiskaði 6 villur á mótherjana, gaf 3 stoðsendingar, stal einum bolta og varði eitt skot. Framlag hans skilaði 28 framlagsstigum og lék hann lykilhlutverk í að tryggja Vesturbæingum sinn fimmta sigur í jafnmörgum leikjum og toppsæti deildarinnar.

Lykilleikmenn – Bónus deild karla:
- umferð – Atli Freyr Haraldsson Katrínarson / Valur
- umferð – Ragnar Ágústsson / Tindastóll
- umferð – Sigurður Pétursson / Álftanes
- umferð – Jamir Chaplin / Keflavík
- umferð – Linarda Jaunzems / KR




