HomeBónus deildinBónus deild karlaSektir eftir leik Tindastóls og Álftaness: Laksa og Óliver sektaðir

Sektir eftir leik Tindastóls og Álftaness: Laksa og Óliver sektaðir

Aga- og úrskurðarnefnd KKÍ hefur sektað tvo leikmenn eftir hita í leik Tindastóls og Álftaness á dögunum.  

Martins Laksa, leikmaður Álftaness, þarf að greiða 40.000 krónur vegna óíþróttamannslegrar háttsemi í leiknum. Þá var Óliver Ólafsson hjá Tindastóli sektaður um 15.000 krónur fyrir að yfirgefa varamannabekkinn þegar uppþot eða átök brutust út, þótt hann hafi ekki tekið frekari þátt í sjálfum átökunum.

Fréttir
- Auglýsing -