Það hefur oft verið reynt að setja saman draumalið í íslenska körfuboltanum þar sem miklum fjármunum og stjörnum er safnað saman til þess að tryggja stóra titilinn.
Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar rýndu þeir Davíð Eldur og JónFrí í söguna og stilltu upp topp 5 lista yfir þau lið frá þessum áratug sem lögðu allt undir á leikmannamarkaðnum til að landa Íslandsmeistaratitlinum, þar sem flestum mistókst ætlunarverkið en eitt á enn eftir að sanna sig.
Í umræðunni um komandi leiktíð var jafnframt bent á að ásamt Álftanesi væru bæði Tindastóll og Grindavík sögð leggja hvað mest í sölurnar til að ná árangri í vetur á meðan önnur lið þyrftu að treysta á kraftaverk til að eiga möguleika á þeim stóra gegn þeim.
Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

Topp 5: Liðin sem reyndu að kaupa titilinn (á þessum áratug)
1. Keflavík (2024–2025)
Hópurinn var ótrúlega hlaðinn gæðum og breidd, með alls 12 leikmenn sem spiluðu yfir 20 mínútur að meðaltali í leik. Nöfn eins og Wendell Green, Ty-Shon Alexander, Remu Raitanen, Igor Maric, Callum Lawson, Jaka Brodnik, Jarell Reischel og Halldór Garðar. Þrátt fyrir þennan risahóp endaði tímabilið í vonbrigðum með 10–12 árangri og liðinu var svo sópað út af Tindastóli í úrslitakeppninni.

2. Tindastóll (2023–2024)
Stólarnir mættu með gríðarlegan mannskap til að verja titilinn frá tímabilinu á undan. Þar voru innanborðs leikmenn á borð við Þóri Guðmund Þorbjarnarson, Callum Lawson, Adomas Drungilas, Davis Geks, Sigtrygg Arnar Björnsson, Keyshawn Woods, Jacob Calloway og Pétur Rúnar Birgisson. Mikil fjárfesting sem skilaði þó ekki Íslandsmeistaratitlinum þann veturinn.

3. Stjarnan (2025–2026)
Garðbæingar mættu hlaðnir gæðaleikmönnum tímabilið eftir að hafa í fyrsta skipti orðið Íslandsmeistarar. Með leikmenn á borð við Hilmar Smára Henningsson, Luka Gasic, Orra Gunnarsson, Seth LeDay, Giannis Agravanis, Ægi Þór Steinarsson og Pablo Bertone var lagt gríðarlega mikið undir til að taka titilinn. Óhætt er þó að segja að meiðsl hafi haft sitt að segja varðandi hversu langt þeir komust.

4. Njarðvík (2021–2022)
Löngu var búið að leggja línurnar með gríðarlega dýrum og reynslumiklum mannskap. Liðið var 17–5 í deildinni og fór alla leið í undanúrslit, þar sem erlenda tríóið Dedrick Basile, Mario Matasovic og Fotios Lampropoulos voru allir með yfir 20 í framlag að meðaltali, studdir af leikmönnum eins og Nicolas Richotti, Hauki Helga Pálssyni og Loga Gunnarssyni. Titillinn lét hins vegar á sér standa líkt og í svo mörg ár á undan hjá þeim grænu.

5. Álftanes (2026–2027)
Nýjasta tilraunin til að smíða meistarahóp á mettíma. Álftnesingar hafa gjörbreytt sínu liði með risafélagaskiptum á borð við Frank Aron Booker, Dedrick Basile, Karl Kristján Sigurðarson, Collin Pryor og Jordan Semple. Ólíkt hinum fjórum á listanum er þetta verkefni nýhafið og það á eftir að koma í ljós hvort þeim tekst ætlunarverkið eða bætast í hópinn sem missteig sig á lokametrunum. Fari svo þeir nái ekki í þann stóra næsta vor, er öruggt að þeir munu þurfa þola vera liðið klúðraði hlutunum alveg rosalega í umræðu næstu ára.




