HomeBónus deildinBónus deild karlaHvaða þjálfari er í heitasta sætinu í Bónusdeild karla?

Hvaða þjálfari er í heitasta sætinu í Bónusdeild karla?

Áhugaverð spurning barst til Aukasendingarinnar fyrir komandi átök í Bónusdeild karla: Hvaða þjálfari situr í heitasta sætinu?

Í nýjasta þættinum fóru þeir Davíð Eldur og JónFrí yfir stöðu allra þjálfara deildarinnar. Niðurstaðan var sú að í raun væri enginn þjálfari í beinni hættu á að verða rekinn á þessum tímapunkti. Markaðurinn meðal lausra þjálfara er mjög þunnskipaður og ef sæti myndi losna yrði frekar horft til öflugra aðstoðarþjálfara í deildinni, líkt og Lárusar Jónssonar hjá Grindavík eða Inga Þórs Steinþórssonar hjá Stjörnunni.

Daníel Guðni og Arnar Freyr hjá Keflavík

Þrátt fyrir það rýndu þeir félagar í þá stöðu ef liðum færi að ganga illa á tímabilinu og nefndu þá þrjá þjálfara sem taldir eru líklegastir til að yfirgefa lið sín ef á móti blæs:

  • Finnur Freyr Stefánsson (Valur)
  • Borche Ilievski (ÍR)
  • Daníel Guðni Guðmundsson (Keflavík)

Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

Fréttir
- Auglýsing -