Fjölnir hafði betur gegn Snæfelli, 79–75, í fyrsta leik liðanna á Lifetrack – Hofland mótinu. Leikurinn fór fram á Selfossi og leiddu Fjölnismenn frá upphafi til loka í hörkuleik.
Fjölnir náði frumkvæðinu snemma, var átta stigum yfir í hálfleik og hélt sjö stiga forystu fyrir lokafjórðunginn. Snæfell beit frá sér á lokasprettinum en Grafarvogsliðið hélt út og tryggði sér fjögurra stiga sigur.
Atkvæðamestur í liði Fjölnis var Daníel með 24 stig, en næstir komu Rafn með 15 stig, Bergur með 11 stig og Elvar Már með 11 stig.
Hjá Snæfelli dró Keylane vagninn í sókninni og setti niður 20 stig. Næstur honum var Cooper með 17 stig, Juan skoraði 12 stig og Sölvi bætti við 10 stigum.




