HomeBónus deildinBónus deild karlaAleksa Ilic semur við Njarðvík

Aleksa Ilic semur við Njarðvík

Njarðvík hefur samið við serbneska miðherjann Aleksa Ilic fyrir komandi tímabil í Bónusdeild karla. Ilic er 206 cm hár og 26 ára gamall miðherji.

Ilic lék með KK Jahorina Pale í Bosníu á síðustu leiktíð. Árið þar á undan lék hann með KK Sloboda Uzice í serbnesku KLS deildinni þar sem hann var með 11,6 stig og 4,6 fráköst að meðaltali í leik.

Eins og glöggir hafa tekið eftir þá verður Milka ekki með Njarðvíkurliðinu á næstu leiktíð og Ilic kemur inn í miðherjahlutverkið í hans stað.

Nánar á heimasíðu Njarðvíkinga

Fréttir
- Auglýsing -