Í þessari viku munu hátt í 150 forystumenn körfuboltans frá 48 Evrópuþjóðum sækja Ísland heim til að funda og ræða evrópskan og alþjóðlegan körfuknattleik dagana 15.–16. maí.
Tilefnið er þing evrópska körfuknattleikssambandsins FIBA Europe, ásamt stjórnar- og vinnufundi framkvæmdastjóra, en það er mikill heiður fyrir KKÍ og Hannes S. Jónsson, varaforseta FIBA Europe og framkvæmdastjóra KKÍ, að hýsa þennan stóra viðburð hér á landi.
Karfan hitti Hannes á blaðamannafundi sem haldinn var fyrir fundina.



