HomeBónus deildinBónus deild kvennaKonfekt körfuboltans í vændum – oddaleikur hjá Njarðvík og Grindavík

Konfekt körfuboltans í vændum – oddaleikur hjá Njarðvík og Grindavík

Njarðvíkingar eru búnir að koma undanúrslitaeinvíginu gegn Grindavík í oddaleik með 68-72 útisigri í fjórðu viðureign liðanna. Grindavík komst í 2-0 í einvíginu en nú verður það oddaleikur, konefekt körfuboltans, sem mun ráða úrslitum um hvort liðið fari í úrslitarimmuna um Íslandsmeistaratitilinn.

Í fljótu bragði…Njarðvíkingar byrjuðu ögn betur, Grindavík leiddi þó í gegnum annan og þriðja en í fjórða snéri Njarðvík taflinu við og landaði sigri með því að halda Grindavík í aðeins 3 stigum í fjórða leikhluta!

Farhyia Abdi fór mikinn í liði Grindvíkinga með 28 stig og þar af 5 þristar, 9 fráköst og 4 stoðsendingar. Hjá Njarðvíkingum var Danielle Rodriguez með 24 stig, 13 fráköst og 5 stoðsendingar.

Í leik þrjú þegar Njarðvík minnkaði muninn í 1-2 skoraði Grindavík alls 4 þrista í leiknum. Gular bættu úr þeirri nýtingu strax í fyrsta leikhluta þar sem Abdi setti snemma þrjá þrista í jafn mörgum tilraunum og heimakonur frískar. Njarðvíkingar voru að sama skapi ferskir og þessi fyrsti leikhluti var bráðskemmtilegur, gestirnir grænar leiddu 27-30 að honum loknum. Abdi með 14 stig fyrir Grindvíkinga og Dani sömuleiðis Njarðvíkurmegin. Heimakonur urðu þó fyrir smá skakkaföllum þessar fyrstu tíu mínútur þar sem Nystrom nældi sér í þrjár villur í fyrsta leikhluta en hún er einn af sterkari varnarmönnum Grindavíkurliðsins.

Grindvíkingar hertu róðurinn varnarlega í öðrum leikhluta og héldu Njarðvíkingum í aðeins 12 stigum og náðu því forystunni og leiddu 50-42 í hálfleik. Abdi hélt áfram að vera Njarðvíkingum erfið í öðrum hluta og var með 23 stig í leikhléi og síðustu þrjú stigin komu úr flautuþrist hjá henni sem sendi heimakonur með rjúkandi meðbyr inn í hálfleikinn.

Abdi sjóðandi með 23 stig, 5 fráköst og 4 stoðsendingar í hálfleik og Abby með 9 stig og 6 stoðsendingar. Hjá Njarðvíkingum var Dani með 16 stig í háfleik og Dinkins 13. Grindvíkingar voru að gera vel fyrir utan þriggja stiga línuna í fyrri, 8-16 eða 50% nýting og hún var s.s. ekki slæm Njarðvíkurmegin 42%, 6-14.

Njarðvíkingar náðu að minnka muninn í 52-50 í þriðja leikhluta með öflugum varnarleik en það var lítið skorað almennt. Grindvíkingar fundu þó dampinn á ný og Abdi smellti niður sínum fimmta þrist í leiknum og kom heimakonum í 59-50 þegar þrjár voru eftir af þriðja. Eftir mikla eyðimerkurgöngu sóknarlega í þriðja þá lokaði Dinkins leikhlutanum með körfu á síðustu sekúndum leikhlutans og minnkaði muninn í 65-57 og þannig stóðu leikar fyrir fjórða. Þriðji hluti var því hnífjafn og fór 15-15.

Hægt og bítandi í fjórða náði Njarðvík að jafna og síga framúr 68-71 og sú var staðan með rúmar þrjár mínútur til leiksloka. Njarðvíkurvörnin þétt og öflug fyrstu sjö mínúturnar í fjórða og skotin sem Grindavík var að setja fyrr í leiknum voru að dansa af hringnum. Síðustu þrjár mínúturnar breyttist staðan ekki mikið, Grindvíkingum gekk illa að finna körfuna og Njarðvík sigldi heim 68-72 útisigri og því verður oddaleikur! Grindavík gerði aðeins þrjú stig í fjórða leikhluta í kvöld sem er magnað varnarafrek Njarðvíkurmegin.

Oddaleikurinn verður í IceMar-Höllinni þriðjudaginn 5. maí næstkomandi og ljóst að það verður fullt út úr dyrum þann leikinn. Þetta einvígi hefur verið einstaklega skemmtilegur rússibani til þessa og því fróðlegt að sjá hvað þessir öflugu leikmenn bjóða okkur upp á í konfektinu á þriðjuag.

Tölfræði leiksins

Fréttir
- Auglýsing -