HomeBónus deildinBónus deild kvennaNjarðvík minnkaði muninn og fær séns á að jafna á verkalýðsdaginn

Njarðvík minnkaði muninn og fær séns á að jafna á verkalýðsdaginn

Njarðvíkingar minnkuðu muninn 1-2 í undanúrslitum gegn Grindavík í Bónusdeild kvenna í kvöld. Lokatölur 94-88 í leik þar sem Njarðvík leiddi frá upphafi til enda. Bestu kaflar Grindavíkur í kvöld komu helst til of seint og slök skotnýting framan af leik var dýrt spaug. Dinkins átti enn einn stórleikinn fyrir Njarðvík með 31 stig, 7 fráköst, 6 stoðsendingar og 6 stolna bolta. Hjá Grindavík voru Ellen Nyström og Abby Beeman báðar með 23 stig.

Ferskleikinn var Njarðvíkurmegin í upphafi leiks og staðan 14-6 þegar Þorleifur kallaði sínar Grindavíkurkonur í leikhlé. Eftir samtals 11 þrista í byrjun sem vildu ekki niður hjá liðunum sameiginlega þá var það Dani Rodriguez sem losaði um stífluna og kom Njarðvík í 17-9 með fyrsta þrist leiksins. Heimakonur leiddu svo 26-12 að loknum fyrsta leikhluta þar sem Dani var með 11 stig en Abby með 5 hjá gestunum.

Skotnýtingin var ekki upp á marga fiska hjá Grindvíkingum í fyrsta leikhluta og þá fóru þær fremur óvarlega með boltann, sex tapaðir boltar á fyrstu 10 mínútum leiksins.

Dinkins tók við keflinu af Daní hjá Njarðvík í öðrum leikhluta og snögghitnaði, körfur í öllum regnbogans litum og þristur frá henni kom heimakonum í 39-23 þegar fimm mínútur voru til hálfleiks. Grindvíkingar unnu þó leikhlutann 18-19 og staðan í hálfleik því 44-31 fyrir Njarðvík. Farhyia átti fínar rispur í öðrum leikhluta fyrir Grindavík og var komin með 9 stig í hálfleik en Abby var stigahæst með 11 hjá gestunum. Dinkins var atkvæðamest Njarðvíkurmegin með 18 stig og 4 stolna bolta.

Langskotin áttu ekki að liggja fyrir liðunum fyrstu 20 mínútur leiksins, Njarðvík 3-13 í þristum í hálfleik en Grindvíkingar 0-10 og með 11 tapaða bolta.

Snemma í þriðja leikhluta kom Hulda María Agnarsdóttir Njarðvíkingum í 53-33 með þrist og skömmu síðar fylgdi Dinkins með annan í kjölfarið 56-35 og heimakonur að hefja þriðja leikhluta með látum. Það kom svo að því að þristur datt hjá Grindavík, Nyström þar að verki og minnkaði muninn í 60-42 en fyrstu 11 þristar gestanna í kvöld voru púðurskot.

Nyström var öflug í liði Grindvíkinga í þriðja og gestirnir létu ekki 20 stiga forystu Njarðvíkinga trufla sig og hófu að saxa niður forskotið og náðu því niður í 8 stig á fimm mínútum og staðan 69-61 fyrir fjórða og síðasta leikhluta. Grindavík vann því leikhlutann 25-30 og allt önnur og betri holning á gestunum heldur en í fyrri hálfleik.

Aftur var það Hulda María sem var með stóran þrist í upphafi leikhluta, nú í fjórða þegar Grindvíkingar voru farnir að anda í Njarðvíkurhálsmálið setti Hulda einn langdrægan úr horninu og kom Njarðvík í 79-66 með sjö mínútur til leiksloka.

Það virtist hafa tekið talsvert á bensíntankinn hjá Grindavík að grafa sig upp úr holunni í þriðja því í fjórða þá náði Njarðvík hægt og bítandi að slíta sig frá gestunum að nýju. Staðan 90-75 þegar tvær mínútur voru til leiksloka. Aftur tók Grindavík dembu og síðustu tvær mínútur leiksins unnu þær 4-13 en það dugði ekki að sinni og lokatölur 94-88 eins og áður greinir.

Liðin mætast í fjórða undanúrslitaleiknum föstudaginn 1. maí á sjálfan verkalýðsdaginn í Grindavík.  

Tölfræði leiksins

Gangur leiksins

14-6, 26-12
39-23, 44-31
60-42, 69-61
84-71, 94-88

Myndir/ SBS

Fréttir
- Auglýsing -