HomeBónus deildinBónus deild karlaGrindavík í undanúrslit með spennusigri í IceMar-Höllinni

Grindavík í undanúrslit með spennusigri í IceMar-Höllinni

Deildarmeistarar Grindavíkur tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum Bónusdeildar karla með 84-91 sigri gegn Njarðvík. Þar með fór einvígið 3-1 fyrir Grindavík eftir að Njarðvíkingar höfðu náð 0-1 forystu í fyrsta leik. Semple var stigahæstur hjá Grindavík í kvöld með 23 stig og setti persónulegt met á tímabilinu með því að setja þrjár þriggja stiga körfur í leiknum. Hjá Njarðvíkingum var Lautier atkvæðamestur með 21 stig. Leikur kvöldsins var jafn og spennandi en Grindvíkingar héldu vel á spilunum á lokasprettinum og eru komnir áfram.

Heimamenn í Njarðvík fóru betur af stað í kvöld og leiddu 28-17 að loknum fyrsta leikhluta. Pipkins fann fjölina fyrir utan og var með 9 stig með 3-4 í þristum en hjá Grindavík voru Pargo og Mortensen báðir með 5 stig eftir fyrsta.

Semple minnkaði muninn í 33-23 snemma í öðrum leikhluta með sínum þriðja þrist í jafn mörgum tilraunum fyrir Grindavík. Ógn úr óvæntri átt svona öllu jöfnu en Semple hefur þó sett þær nokkrar fyrir utan í gegnum tíðina.

Ólafur Ólafsson kveikti í Grindvíkingum á lokaspretti annars leikhluta með öflugri baráttu og þremur góðum þristum og gestirnir unnu annan leikhluta 28-15 og síðustu fimm mínútur leikhlutans tóku þeir 4-15 sprett.

Lautier var stigahæstur hjá Njarðvík í leikhléi með 13 stig en Semple 15 hjá Grindavík og Ólafur 13. Heimemenn í Njarðvík voru að gera vel fyrir utan þriggja í hálfleik með 53% nýtingu (8-15)

Veigar Páll kom heitur inn í þriðja með tvo þrista í röð og kom Njarðvík í 51-46. Ólafur Ólafsson bætiefnataflan úr öðrum leikhluta sat á tréverkinu megnið af þriðja en Kristófer Breki tók að sér að setja tvo þrista í staðinn og Grindavík náði forystunni 64-68 og þannig stóðu leikar eftir þriðja hluta. Kristófer reyndar eini maður vallarins eftir 30 mínútur í teljandi villuvandræðum með fjórar villur.

Grindvíkingar voru.komnir með sex stiga forystu snemma í fjórða en þá mætti Sven með þrist og villu að auki og með þeirri fjögurra stiga sókn fyrir Njarðvíkinga minnkaði hann muninn í 73-75 með rúmar sex mínútur til leiksloka.

73-79 og 4.55 mín eftir af leiknum þegar Pargo setur stóran þrist fyrir Grindavíkinga með sköpunargáfuna eina að vopni. Pargo lét ekki staðar numið hér og bætti strax við öðrum þrist 75-82. Lautier minnkaði muninn í 80-82 með tvær mínútur til leiksloka en þá mætti Kane í næstu sókn með risa þrist 80-85 og 1.50 mín eftir. Með 40 sekúndur eftir freistaði Lautier þess að minnka muninn með þrist en hann klikkaði og þar með fjaraði undan tímabili Njarðvíkinga og Grindavík arkaði inn í undanúrslit með 84-91 sigri.

Gangur leiksins:

11-7, 28-17
39-30, 43-45
62-55, 64-68.
75-79, 84-91.

Tölfræði leiksins

Fréttir
- Auglýsing -