HomeNeðri deildirBæjarins Beztu deild karla5 þjálfarar sem eiga að fá launahækkun

5 þjálfarar sem eiga að fá launahækkun

Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar mættu þeir Mummi Jones og Strikerinn Árni Jó í settið til Davíðs Elds og fóru yfir gang mála. Einn af dagskrárliðum þáttarins sneri að þeim þjálfurum sem hafa náð hvað bestum árangri miðað við aðstæður og væntingar í upphafi tímabils – og geta því gengið beint inn á skrifstofu formannsins og krafist launahækkunar.

Hér er listi félaganna yfir þá fimm þjálfara sem hafa staðið sig best, ásamt þeim sem banka hvað fastast á dyrnar, en umræðuna má heyra í spilaranum hér að ofan.

Viðar á svo sannarlega skilin hærri laun fyrir þessa byrjun í Bónus deildinni

5 þjálfarar sem eiga að fá launahækkun

1. Jakob Örn Sigurðarson — KR

Jakob trónir á toppnum enda hefur hann stýrt KR-liðinu í algjöra draumabyrjun í Bónusdeild karla – og það meira að segja eftir að liðið náði ekki að fá löglegan bandarískan leikmann sinn og leikur nú kanalaust. Áfram í bikar, taplausir í deild, sigur gegn Álftanesi úti, allt að tikka með Jakobi og félögum í upphafi tímabils.

2. Viðar Örn Hafsteinsson — Höttur

Viðar hefur enn á ný sýnt hversu öflugur hann er á hliðarlínunni fyrir austan. Höttur hefur landað dýrmætum sigrum gegn þungri leikjaniðurröðun í upphafi móts og stimplað sig rækilega inn. Hefur sett saman gott lið sem var tilbúið frá fyrsta degi og tekist að kveðja botn deildarinnar nokkuð örugglega, sem er sterkt fyrir nýliða.

3. Jóhannes Bjarmi Skarphéðinsson— Selfoss

Frábær byrjun Selfoss í Bæjarins Beztu deildinni fer ekki fram hjá neinum. Bjarmi hefur náð frábærum takti út úr sínu liði sem situr í toppbaráttunni og gerir tilkall til stórra hluta í vetur.

4. Daníel Guðni Guðmundsson — Keflavík

Daníel Guðni og hans menn í Keflavík hafa farið mjög vel af stað í Bónusdeild karla, spilað af miklum krafti og sýnt að liðið ætlar sér í toppbaráttuna þrátt fyrir að bankainnistæðan sé ekki sú sama og hún hefur oft verið hjá félaginu. Hafa oftar en ekki verið að spila 4+1 vegna skakkafalla í hópnum, en það hefur ekki komið að sök. Ná samt í úrslit.

5. Ólafur Jónas Sigurðarson — Stjarnan

Ólafur Jónas heldur áfram að gera frábæra hluti í Garðabænum með kvennalið Stjörnunnar og skipar sér verðskuldaðan sess á meðal fimm efstu á þessum lista. Virðist vera fá það allra besta úr annars góðum hópi leikmanna í Ásgarði.

Feðgarnir eru ekki langt frá því að geta krafist launahækkunar

Næstir inn á listann

  • Finnur Freyr Stefánsson (Valur): Lengi vel taplaust topplið í Bónusdeild karla og algjör stöðugleiki frá fyrsta leik – Finnur er rétt fyrir utan topp fimm að þessu sinni.
  • Feðgarnir í Breiðabliki: Þeir feðgar hafa náð góðum árangri í Kópavoginum í upphafi tímabils og banka fast á dyrnar inn á listann. Sigur gegn Grindavík í bikar fer langleiðina með að tryggja þeim hærri laun.

Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.

Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

Fréttir
- Auglýsing -