Nýr þáttur af Aukasendingunni er kominn í loftið! Að þessu sinni mættu þeir Mummi Jones og Strikerinn Árni Jó í settið til Davíðs Elds og tóku fyrir allt það helsta sem hefur borið á góma í íslenska körfuboltanum að undanförnu.
Félagarnir fara yfir fréttir vikunnar og rýna í stöðu mála í Bónusdeild karla. Meðal annars er spurt hvaða þjálfarar deildarinnar hafi staðið sig það vel hingað til að þeir geti farið beint á skrifstofu formannsins og krafist launahækkunar. Þá er lagskipting Bónusdeildar karla tekin til skoðunar og rætt hvernig liðin raðast upp í styrkleikaflokka nú þegar mótið er komið á fullt skrið.
Einnig er sjónum beint að erlendu leikmönnum deildarinnar og sérfræðingarnir fara yfir hverjir eru bestu Bandaríkjamenn Bónusdeildar karla í vetur. Að lokum er kíkt yfir í Bæjarins Beztu deildina þar sem helstu tíðindi og frammistöður eru gerðar upp, ásamt mörgu fleiru.
Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.




