spot_img
HomeFréttir4-liða úrslit NCAA í kvöld

4-liða úrslit NCAA í kvöld

 
 
Í kvöld er komið að undanúrslitum í bandaríska háskólakörfuboltanum. Í fyrri leik kvöldsins sem hefst kl. 22.06 að íslenskum tíma mætast spútnik liðin tvö VCU og Butler.
VCU hefur komið einna mest á óvart í keppninni í ár en að sama skapi gerði Butler það i fyrrra og hefur farið lengra í ár en margir reiknuðu með.
 
Þess má geta að skráðir nemendur í skólunum eru 4.200 í Butler en 32.000 í VCU. VCU er í fyrsta sinn í sögu skólans í undanúrsitum en Butler eru í annað sinn, í fyrsta sinn í fyrra.
 
00.49 mætast svo Connecticut og Kentucky í seinni leik kvöldsins. Skólarnir eru svipaðir að stærð með um 27.000 nemendur. UConn hefur fjórum sinnum verið í undanúrslitum áður og unnið tvo titla á meðan Kentucky hefur fjórtán sinnum farið í undanúrslit og unnið sjö titla.
 
ESPN stóð fyrir leik að venju og tóku 6 milljónir manna þátt í að fylla út "Bracket" og spá fyrir um hvaða lið færu alla leið. Enginn var með alla 32 leikina rétta eftir fyrstu umferðina. Í dag eru 1,093 manns með 3 lið af fjórum rétt og aðeins tveir með öll fjögur liðin rétt í úrslitum sem skýrist að hluta til af því að liðin sem eru komin í úrslit eru númer 3, 4, 8 og 11 í styrkleikaröðuninni sem er frekar óvenjulegt.
 
Sigurvegararnir mætast svo mánudaginn 4. apríl.
Fréttir
- Auglýsing -