Jón Arnór Stefánsson gerði 9 stig í öruggum 65-85 útisigri CAI Zaragoza gegn Canary CB 65 í gær. Jón var ekki í byrjunarliðinu en lék í tæpar 20 mínútur og skoraði níu stig. Atkvæðamestur í liði Zaragoza var Sam Van Rossom með 21 stig.
Jón var einnig með eitt frákast og eina stoðsendingu en Zaragoza hefur nú unnið tvo fyrstu leiki sína í ACB deildinni og er á toppi deildarinnar ásamt Real Madrid þegar þetta er ritað.
Haukur Helgi Pálsson verður svo á ferðinni síðar í dag þegar Manresa tekur á móti Herbalife GC.






