Zacharry Jamarco Warren, leikmaður Breiðabliks, átti heldur betur tilþrif leiksins um daginn í leik Breiðabliks og Ármanns í Smáranum. Zachary átti frábæran leik, skoraði 40 stig, 5 fráköst, fiskaði 9 villur og var með 35 framlagsstig á tæpum 32 mínútum. Hann setti niður 7 af 10 þriggja stiga skotum og var með 88% nýtingu innan þriggja stiga línunnar.




