HomeBónus deildinBónus deild karlaÚrslit kvöldsins í Bónus deild karla

Úrslit kvöldsins í Bónus deild karla

Tindastóll vann sjö stiga heimasigur gegn ÍR, 94–87, í eina leik kvöldsins í Bónus deild karla. Leikurinn var jafnframt hinn árlegi Bangsaleikur Stólanna til styrktar félaginu Einstök börn.

Jafnræði var með liðunum framan af og leiddu gestirnir úr Breiðholti með einu stigi eftir fyrsta leikhluta, 20–19. Staðan í hálfleik var hnífjöfn, 42–42, en Stólarnir náðu frumkvæðinu í þriðja leikhluta með góðum kafla (27–18) og héldu forystunni allt til loka.

Nemanja Djurisic fór fyrir Tindastóli með tröllatvennu; skoraði 31 stig og tók 10 fráköst. Taiwo Hassan Badmus bætti við 14 stigum, 5 fráköstum og 3 vörðum skotum, Demerquis Bost skilaði 13 stigum, 5 fráköstum og 6 stoðsendingum og Ade Taqqiyy Murkey skoraði 12 stig.

Hjá ÍR var Montez Mathis atkvæðamestur með 26 stig og 7 fráköst og Kevin Kone skoraði 17 stig og tók 7 fráköst. Kristján Fannar Ingólfsson skilaði 14 stigum og Tómas Orri Hjálmarsson bætti við 10 stigum og 6 fráköstum. Nýr leikmaður liðsins, Ólafur Björn Gunnlaugsson, lék sinn fyrsta leik fyrir ÍR og skilaði 6 stigum á tæpum 20 mínútum.

Með sigrinum jafna Stólarnir lið KR og Vals á toppi deildarinnar með 10 stig en ÍR situr áfram í níunda sæti með 2 stig eftir sex leiki.

Tindastóll – ÍR 94–87 (19–20, 23–23, 27–18, 25–26)

Tindastóll: Nemanja Djurisic 31/10 fráköst, Taiwo Hassan Badmus 14/5 fráköst/3 varin skot, Demerquis Bost 13/5 fráköst/6 stoðsendingar, Ade Taqqiyy Henry Murkey 12/4 fráköst, Júlíus Orri Ágústsson 8, Sigtryggur Arnar Björnsson 7/5 fráköst, Ragnar Ágústsson 6/5 fráköst, Davis Geks 3, Hallur Atli Helgason 0, Óliver Árni Ólafsson 0, Haukur Davíðsson 0, Pétur Rúnar Birgisson 0.

ÍR: Montez Mathis 26/7 fráköst, Kevin Kone 17/7 fráköst, Kristján Fannar Ingólfsson 14/4 fráköst, Tómas Orri Hjálmarsson 10/6 fráköst, Jarrett Bryant 9/5 fráköst, Ólafur Björn Gunnlaugsson 6, Dani Koljanin 5/6 fráköst/5 stoðsendingar, Aron Orri Hilmarsson 0, Þorgrímur Starri Halldórsson 0, Frank Gerritsen 0.

Fréttir
- Auglýsing -