Grikkinn Dimitrios Klonaras er á förum frá Íslandi og mun ekki leika í Bónus-deildinni á komandi leiktíð, en hann hefur samið við svissneska liðið Lions de Genève.
Hann hefur vakið mikla athygli hér á landi síðustu tvö ár, fyrst í búningi Álftaness og síðast með ÍR á liðnu tímabili þar sem hann fór á kostum. Hann var einn af lykilmönnum Breiðhyltinga með 16,3 stig, 9,9 fráköst og 2,9 stoðsendingar að meðaltali í leik.
Samningur Klonaras við Lions de Genève er til tveggja mánaða til að byrja með, en í honum felst möguleiki á framlengingu út leiktíðina. Svissneska félagið fær hann sérstaklega til sín til að styrkja leikmannahópinn fyrir forkeppni Meistaradeildar Evrópu í körfubolta sem hefst á næstunni.




