Ákveðið hefur verið að hið árlega vormót Molduxa fyrir 40 ára og eldri verði haldið laugardaginn 20 apríl n.k. í íþróttahúsinu á Sauðárkróki (Síkinu).
Takið þessa helgi frá og mætum með góða skapið og keppnisandann í lagi.
Allar upplýsingar og skráningar eru hjá Alla Munda í síma 453 6687 / 865 0819 og [email protected]
Á heimasíðu ungmennafélagsins er hægt að fá upplýsingar um gistimöguleika ofl. í Skagafirði fyrir þá sem það vilja.