HomeFréttir"Vona að Tindastólsmenn taki spádóm minn og troði honum í grillið á...

“Vona að Tindastólsmenn taki spádóm minn og troði honum í grillið á mér”

Við fengum bakvörð Keflavíkur, Arnar Freyr Jónsson til að svara nokkrum spurningum um leik kvöldsins og einvígið í heild sinni. 

Hvernig finnst þér liðin match-a upp gegn hvoru öðru?

Mér finnst þau bara match-a ágætlega uppá móti hvort öðru

Hvar sérðu kosti hvors liðs liggja í þessari seríu?  

Kostir KR eru held ég fleiri. Þeir hafa verið þarna áður, eru reynslumeira lið þekkja þetta umhverfi og hvorn annan. Hvað það er að vinna svona leiki og titla á meðan að fyrir Tindastól er þetta allt saman nýtt og reynslan ekki mikil.

Tindastóll er samt með flottan þjálfara, leikmenn og ættu að vera meira hungraðir í þetta ef allt er eðlilegt. Að vinna sinn fyrsta titil. Einnig eru þeir lika betur hvíldir eftir síðasta einvígi, á meðan að KR fór í gegnum hörku prógram á móti Njarðvík. Geta prísað sig sæla að vera þarna eftir frábært körfuboltaeinvígi sem hefur verið góð auglýsing fyrir íslenskan korfubolta…

Hvernig heldur þú að þetta eigi eftir að spilast út? Hvernig spáir þú að þetta fari?

Ef að Pavel er heill og Craion vinur minn (en ekki Cræon eins og hann hefur verið kallaður í sjónvarpinu uppá síðkastið) spila eins og þeir eiga og geta. Þá verður þetta erfitt fyrir Tindastól því þeir eru bara of reynslu litlir þegar það er komið á þetta stig og kunna ekki að vinna titla. KR kann að klára stóru leikina eins og þeir sýndu okkur í síðasta leik, sem og það að vinna titla.

Held að þetta fari 3-1 fyrir KR en vona svo sannarlega að Tindastólsmenn taki þennan spádóm minn og troði honum í grillið á mér. Væri flott fyrir körfubolta á Íslandi að fá Íslandsmeistaratitil út á land.

Fréttir
- Auglýsing -