spot_img
HomeSubway deildinSubway deild karlaVinson með slitið krossband

Vinson með slitið krossband

Terrel Vinson leikmaður Grindvíkinga hefur fengið staðfest að hann er með slitið krossband og mun hann gangast undir hnífinn góða.  Óvitað er hvenær hann fer í aðgerð en hún mun verða framkvæmd hér á landi.  “Við hittum lækni á morgun og fáum þá að vita meira hvenær aðgerðin getur verið framkvæmd.” sagði Vinson í samtali við Karfan.is

 

Vinson hóf sinn feril á Íslandi með Njarðvíkingum í fyrra en Grindvíkingar sömdu við hann fyrir þessa leiktíð.  Vinson meiddist svo í leik gegn Skallagrím þar sem hann skilaði 27 stigum og tók 10 fráköst.   Síðan þá hafa Grindvíkingar samið við Lewis Clinch Jr.

 

 

Fréttir
- Auglýsing -