HomeBónus deildinBónus deild kvennaStólarnir brotnuðu undan þunga Vals

Stólarnir brotnuðu undan þunga Vals

Tindastóll tók á móti Valskonum í Bónus deild kvenna í körfuknattleik í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld. Stólastúlkur unnu fyrstu tvo deildarleikina en hafa verið í vandræðum síðan en Valskonur hafa komið sterkar inn þrátt fyrir spár um slakt gengi.

Leikurinn fór mjög rólega af stað í stigaskorun og staðan 2-5 fyrir gestina eftir rúmlega 3 mínútna leik. Stólar áttu í erfiðleikum með að koma boltanum í körfuna og það lagaðist því miður fyrir þær ekki mikið eftir því sem leið á leikinn. Þær náðu þó að standa vörn ágætlega og staðan 9-15 eftir fyrsta leikhluta. Valskonur hertu tökin í öðrum leikhluta á meðan Stólar héldu áfram að hitta illa og munurinn var orðinn 12 stig í hálfleik 22-34.

Slæmt varð verra fyrir Stólastúlkur í þriðja leikhluta þar sem þær náðu einungis að setja 6 stig á töfluna í öllum leikhlutanum. Valsstúlkur settu á meðan 20 stig og leikurinn í raun búinn fyrir lokafjórðunginn 28-54. Stólar náðu aðeins að klóra í bakkann um tíma í fjórða en Valsstúlkur sigldu að lokum öruggum sigri heim.

Hjá Stólum var Kolbrún María atkvæðamest með 17 stig og 10 fráköst og Inga Sólveig bætti við 12 stigum og 7 fráköstum. Frammistaða erlendu leikmannanna var ekki til útflutnings, einungis 16 stig samtals og Florencia Chagas hitti ekki úr einu skoti allan leikinn. Einungis 8 leikmenn voru á skýrslu hjá Stólum sem glíma við meiðsli auk þess sem bandarískur leikmaður þeirra yfirgaf liðið. Hjá Val var Stone stigahæst en aðeins með 8 í framlag.  Alyssa endaði með tröllatvennu, 12 stig og 12 fráköst var framlagshæst og Sara Líf skilaði 6 stigum og 11 fráköstum.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -