spot_img
HomeFréttirVesturlandsslagur og Norðurlandsskjálfti í kvöld

Vesturlandsslagur og Norðurlandsskjálfti í kvöld

14:57
{mosimage}

(Hlynur Bæringsson verður í baráttunni í kvöld) 

Fjórir leikir eru á dagskrá í Iceland Express deild karla í körfuknattleik í kvöld og hefjast þeir allir kl. 19:15. Í Njarðvík taka heimamenn á móti botnliði Hamars og nýliðar Stjörnunnar heimsækja topplið Keflavíkur í Sláturhúsið. Snæfell og Skallagrímur mætast í Stykkishólmi og Þór Akureyri tekur á móti Tindastól. 

Með sigri í kvöld geta Keflvíkingar að nýju komið sér einir á topp deildarinnar en Stjörnumenn hafa fengið nýjan Bandaríkjamann til liðs við sig sem virðist hafa fært aukið sjálfstraust í Garðbæinga. Stjarnan hafði góðan sigur gegn Njarðvík í síðustu umferð en Keflavík lá gegn KR í Vesturbænum. Gegn KR tók það þá Bobby Walker og Tommy Johnson heilar 24 mínútur að gera sín fyrstu stig en það veit ekki á gott í kvöld ef þeir Walker og Johnson ætla að vera aftur jafn lengi í gang.  

Njarðvíkingar hafa undanfarið leikið án miðherjans Egils Jónassonar sem nýverið fór í aðgerð við meiðslum í hné. Hann er þó væntanlegur aftur í raðir Njarðvíkinga á næstunni en verður að öllum líkindum ekki með í kvöld. Hamarsmenn eru á síðasta séns og ætli þeir sér að halda sæti sínu í deildinni koma fátt annað en sigrar til greina í næstu leikjum.  

Vafalítið verður fjölmennt í Stykkishólmi í kvöld þegar Snæfellingar taka á móti fjendum sínum úr Borgarnesi. Jafnan eru viðureignir þessara liða miklir slagir og síðast þegar liðin mættust í deildinni hafði Skallagrímur dramatískan 81-80 sigur í Borgarnesi. Hlynur Bæringsson og félagar úr Hólminum leitast við að kvitta fyrir þá fýluferð í kvöld. 

Á Akureyri verður Norðurlandsskjálfti þegar Þór tekur á móti Tindastól í Síðuskóla. Bæði lið berjast nú hart fyrir sæti sínu í deildinni og úrslitakeppninni. Þór er í 8. sæti deildarinnar með 14 stig en Tindastóll hefur 12 stig í 9. sæti og geta með sigri jafnað Þór að stigum og hleypt enn meiri spennu í neðri hluta deildarinnar.  

Alla leiki dagsins má finna með því að smella hér! 

Staðan í deildinni

Fréttir
- Auglýsing -