Vésteinn Sveinsson og liðsfélagar hans í Marshalltown hafa sungið sitt síðasta þessa leiktíðina en Marshalltown tapaði illa gegn Southeastern Community College í úrslitakeppni riðilsins í 2. deild bandaríska háskólaboltans. Vésteinn kvað niðurstöðuna mikil vonbrigði enda hafði Marshalltown fyrr á tímabilinu unnið Southeastern með rúmum 10 stigum á sínum heimavelli en töpuðu reyndar á heimavelli Southeastern með 3 stigum. Í úrslitakeppninni seint í síðustu viku lá Marshalltown með 20 stiga mun og eru því úr leik þetta árið!
,,Þeir eru með góðan heimavöll, mikið af áhorfendum og mikill hávaði,“ sagði Vésteinn sem lék mikið í leiknum þó hann næði ekki að skora.
,,Þetta voru mikil vonbrigði fyrir okkur, þeir mættu klárari í leikinn, Hittu úr öllu! Það voru mikil læti þarna inni, við gátum varla talað við hvorn annan inni á vellinum. Þeir mættu tilbúnir og eru með miklu breiðari hóp en við. Þeir voru að rúlla á 9-10 gæjum en við bara á 6 leikmönnum,“ sagði Vésteinn sem sagði tímabilið þrátt fyrir þetta hafa verið gott.
,,Ég fékk tækifæri tl að sanna mig og ég er búinn að læra mikið. Það er hrikaleg samkeppni og ef maður misstígur sig hérna þá er búið að slá mann út. Ég myndi tvímælalaust mæla með því fyrir íslenska stráka að koma til USA og spila. Þetta er engin smá lífsreynsla,“ sagði Vésteinn sem þegar er búinn að fá nokkur tilboð úr öðrum skólum.
,,Á Næsta ári fer ég í annan skóla af því að leikmenn geta bara verið í 2 ár hér. Þannig að núna á næstu vikum fer ég að kíkja á það, ég er nú þegar með nokkur tilboð frá skólum og ég ætla setjast yfir og skoða það.“





