Skallgrímur hefur samið við bandaríska framherjann Trey Deveaux fyrir átökin í 1. deild karla.
Deveaux er fjölhæfur leikmaður sem getur samkvæmt tilkynningu látið til sín taka á báðum endum vallarins, jafnt í vörn sem sókn. Pálmi, þjálfari Skallagríms, lýsir mikilli ánægju með liðsstyrkinn:
„Trey er öflugur leikmaður sem eykur breiddina hjá okkur og getur leyst mismunandi stöður á vellinum.“





