HomeFréttirA-landslið kvenna hefur leik í forkeppni EuroBasket 2029: 15 leikmenn valdir fyrir...

A-landslið kvenna hefur leik í forkeppni EuroBasket 2029: 15 leikmenn valdir fyrir nóvembergluggann

A-landslið kvenna í körfuknattleik kemur saman til æfinga fimmtudaginn 5. nóvember næstkomandi fyrir komandi verkefni í forkeppni EuroBasket 2029. Liðið æfir hér heima dagana 5.–7. nóvember áður en haldið verður utan til Dyflinnar sunnudaginn 8. nóvember, þar sem fyrsti leikur undankeppninnar fer fram.

Fram undan eru þrír mikilvægir leikir í þessum landsliðsglugga; fyrst útileikur gegn Írlandi áður en liðið snýr heim og tekur á móti Sviss og Aserbaísjan í Ólafssal á Hlíðarenda.

Leikir Íslands í nóvember:

  • Miðvikudagur 11. nóvember kl. 19:00: Írland – Ísland (Dublin)
  • Laugardagur 14. nóvember kl. 16:00: Ísland – Sviss (Ólafssalur)
  • Þriðjudagur 17. nóvember kl. 19:30: Ísland – Aserbaísjan (Ólafssalur)

Hópurinn sem æfir í glugganum:

Pekka Salminen landsliðsþjálfari og aðstoðarþjálfararnir Daníel Andri Halldórsson og Jamil Abiad hafa valið 15 leikmenn til æfinga fyrir leikina þrjá. Styrktarþjálfari liðsins er Arnór Gauti Ragnarsson. Í hópnum er einn nýliði, Darina Andriivna Khomenska úr Aþenu, en reynslumesti leikmaður hópsins er Sara Rún Hinriksdóttir með 38 landsleiki.

  • Anna Ingunn Svansdóttir – Keflavík (20 landsleikir)
  • Ásta Júlía Grímsdóttir – Njarðvík (18 landsleikir)
  • Berglind Katla Hlynsdóttir – Bandaríkin (2 landsleikir)
  • Darina Andriivna Khomenska – Aþena (Nýliði)
  • Diljá Ögn Lárusdóttir – Stjarnan (11 landsleikir)
  • Emma Theódórsson – Njarðvík (2 landsleikir)
  • Eva Wium Elíasdóttir – Stjarnan (9 landsleikir)
  • Helena Rafnsdóttir – Njarðvík (3 landsleikir)
  • Isabella Ósk Sigurðardóttir – Grindavík (19 landsleikir)
  • Kristrún Ríkey Ólafsdóttir – KR (7 landsleikir)
  • Rebekka Rut Steingrímsdóttir – KR (6 landsleikir)
  • Sara Rún Hinriksdóttir – KR (38 landsleikir)
  • Sigrún Björg Ólafsdóttir – Haukar (13 landsleikir)
  • Thelma Dís Ágústsdóttir – Keflavík (29 landsleikir)
  • Þóranna Kika Hodge-Carr – Valur (11 landsleikir)
Fréttir
- Auglýsing -