HomeBónus deildinBónus deild karlaValur semur við bandarískan bakvörð

Valur semur við bandarískan bakvörð

Valsmenn hafa samið við bandaríska bakvörðinn Jelani Simmons fyrir keppnistímabilið í Bónusdeild karla, samkvæmt heimildum Körfuboltakvölds.

Simmons er 24 ára gamall, 195 sentimetra bakvörður sem lék síðast með CA Queluz í efstu deild Portúgals, þar sem hann skilaði 18 stigum, 4,5 fráköstum og 3 stoðsendingum að meðaltali í leik. Hann hefur ekki enn leikið með Val þar sem beðið er eftir að leikheimild hans og alþjóðleg félagaskipti gangi formlega í gegn.

Fréttir
- Auglýsing -