HomeBónus deildinBónus deild kvennaValur getur jafnað liðin í öðru sæti í Grafarvogi í kvöld

Valur getur jafnað liðin í öðru sæti í Grafarvogi í kvöld

Einn leikur fer fram í 7. umferð Bónusdeildar kvenna í kvöld þegar Fjölnir tekur á móti Val í Grafarvogi klukkan 19:15.

Valskonur sitja í fimmta sæti deildarinnar með 8 stig eftir sex leiki og geta með sigri jafnað Hauka, Stjörnuna og KR að stigum í öðru til fjórða sæti með 10 stig. Heimakonur í Fjölni sitja hins vegar á botni deildarinnar, án stiga eftir sex leiki, og freista þess að sækja sinn fyrsta sigur á tímabilinu.

Leikur kvöldsins í Bónusdeild kvenna:

  • Fjölnir – Valur kl. 19:15
Fréttir
- Auglýsing -