HomeFréttirFyrirpartý fyrir leik Íslands og Bosníu í Laugardalshöll á fimmtudaginn

Fyrirpartý fyrir leik Íslands og Bosníu í Laugardalshöll á fimmtudaginn

Körfuknattleikssamband Íslands (KKÍ) efnir til sannkallaðs fyrirpartýs í anddyri Laugardalshallar á fimmtudaginn, 26. nóvember, í samstarfi við Sprite og Bæjarins Beztu Pylsur í aðdraganda landsleiks Íslands og Bosníu í undankeppni HM.

Upphitunin hefst klukkan 17:00, tveimur og hálfum tíma áður en leikurinn sjálfur verður flautaður á klukkan 19:30. Boðið verður upp á leiki, veitingar til sölu og ýmsan glaðning fyrir stuðningsmenn til að koma fólki í rétta gírinn fyrir átökin á vellinum.

Miðasala á leikinn fer fram á vefnum stubb.is.

Fréttir
- Auglýsing -