HomeFréttirValur með flottan sigur í Hafnarfirði

Valur með flottan sigur í Hafnarfirði

Haukar tóku á móti Valsstúlkum í Schenkerhöllinni í kvöld í 19. umferð Dominosdeildar kvenna. Leikurinn var mjög jafn og spennandi fram að fjórða leikhluta en Valur spilaði gríðarlega góða vörn í seinni hálfleik og í fjórða gengu þær hreinlega yfir Hauka og uppskáru fyrir vikið góðan og öruggan 69-91 sigur.
 
Haukar voru með herslumuninn fyrstu mínútur leiksins og skoruðu úr þremur auðveldum sniðskotum í röð ásamt því að setja niður eitt víti og leiddu 7-2. Valur skipti þá yfir í svæði og fóru að pressa að auki. Við það jafnaðist leikurinn en stuttu síðar fór Valur að sækja í sig veðrið, með aðstoð pressunar, og komust þær yfir í stöðunni 16-17. Þær létu ekki þar við sitja og léku Haukastúlkur grátt með vörninni þar sem þær annað hvort stálu af þeim boltanum eða þvinguðu þær í tapaðan bolta og áttu í heildina 10-0 kafla þar sem þær komust í 16-23 áður en Haukum tókst loks að svara. Guðbjörg Sverrisdóttir toppaði svo góðan enda á leikhlutanum fyrir Val með flautuþrist.
 
Haukar byrjuðu  annan leikhlutan á smá skotsýningu þar sem að Dagbjört Samúelsdóttir setti einn þrist og Lele Hardy smellti í tvo og jöfnuðu þær leikinn í 30-30. Eftir það var mikið um barning og liðin fóru að skiptast á körfum. Leikurinn gríðarlega jafn á þessum tímapunkti og staðan 44-45 í hálfleik.
 
Baráttan úr öðrum leikhluta fylgdi með inn í þriðja og var leikurinn mjög jafn. Það kólnaði heldur á Anna Martin sem setti aðeins eina körfu í leikhlutanum eftir að hafa verið sjóðandi í fyrri hálfleik með 23 stig. Það kom þó ekki að sök þar sem að allar hinar í Val stigu upp og sáu um dæla niður körfum. Valur endaði svo leikhlutann mjög sterkt þar sem að Þórunn Bjarnadóttir smellti niður þrist og í næstu sókn náði Guðbjörg í þrjú stig með sniðskoti og víti að auki. Valur með 8 stiga forskot, 60-68.
 
Í fjórða leikhluta skellti Valur hreinlega í lás með gríðarlega öflugri pressu og gátu Haukar hvorki hreyft legg né lið. Þær þvinguðu þær í slæma sendingu á eftir slæmri sendingu þar sem þær annað hvort stálu boltanum auðveldlega eða Haukar fleygðu honum bara útaf. Haukum tókst aðeins að skora 2 stig á fyrstu 7 mínútum leikhlutans og niðurlægingin því algjör. Með sigurinn vissan slökuðu Valsstúlkur aðeins á og Haukum tókst að setja nokkur stig í viðbót en yfirburðir Vals voru svo kórónaðir þegar Sóllilja Bjarnadóttir dúndraði niður þrist þegar leikklukkan gall.
 
Anna Martin var sjóðandi heit fyrir Val og skoraði hún 36 stig á 56% skotnýtingu. Næst kom Guðbjörg Sverrisdóttir með 13 stig, 7 stoðsendingar og 5 fráköst. Annars spilaði allt Valsliðið sem gríðarlega sterk eining.
 
Hjá Haukum var Lele Hardy atkvæðamest að vanda með 21 stig, 16 fráköst, 5 stoðsendingar og 5 stolna bolta en hún var einnig með 8 tapaða bolta. Næst var Lovísa Björt Henningsdóttir með 14 stig, 6 fráköst og 5 varin skot.
 
 
 
Mynd/ Valsstúlkur kátar með góðan sigur
Fréttir
- Auglýsing -