HomeNeðri deildirBæjarins Beztu deild karlaÍA á toppinn í Bæjarins beztu deildinni eftir sigur á Akureyri

ÍA á toppinn í Bæjarins beztu deildinni eftir sigur á Akureyri

ÍA tyllti sér á topp Bæjarins beztu deildar karla í kvöld eftir öruggan 101–87 útisigur gegn Þór á Akureyri.

Jafnræði var með liðunum framan af og var staðan 24–24 eftir fyrsta leikhluta. Skagamenn náðu sex stiga forskoti fyrir hálfleik (48–42) og gerðu svo endanlega út um leikinn í þriðja leikhluta sem þeir unnu 31–17.

Gojko Sudzum var gjörsamlega óstöðvandi hjá ÍA og skoraði 33 stig ásamt því að taka 8 fráköst. Þórarinn Gunnar Óskarsson skilaði tvennu með 14 stig og 10 fráköst, Allen Peter Flanigan var með 13 stig og 9 fráköst, Sölvi Ólason átti tvennu með 10 stig, 5 fráköst og 12 stoðsendingar og Lucien Thomas Christofis skoraði 10 stig og tók 8 fráköst.

Hjá Þór Akureyri var Jalen Green atkvæðamestur með 20 stig, 4 fráköst og 4 varin skot, Justin Andrew skoraði 17 stig og tók 8 fráköst og Pétur Cariglia bætti við 12 stigum.

Með sigrinum fer ÍA upp í efsta sæti deildarinnar með 14 stig eftir átta leiki, jafnt Þór Þorlákshöfn og Haukum að stigum, en Þór Akureyri situr áfram í tíunda sæti með 4 stig.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -