HomeFréttirValsmenn stóðust áhlaupið og taka fyrsta leik

Valsmenn stóðust áhlaupið og taka fyrsta leik

Valur vann fyrsta leikinn í undanúrslitum 1. deildar um sæti í Domino’s deildinni að ári gegn Skallagrím að Hlíðarenda í kvöld.  Leikurinn var hnífjafn og æsispennandi allt fram á lokamínútu leiksins og stefnir því í rosalegt einvígi.  Jamei Stewart fór fyrir Valsmönnum sem fyrr með 26 stig og 11 fráköst. Næstu menn voru nafnarnir Illugi Steingrímsson með 13 stig og Illugi Auðunsson með 10 stig og 13 fráköst.  Hjá Skallagrím var Sigtryggur Arnar Björnsson atkvæðamestur með 22 stig en næstu menn voru Jean Rony Cadet með 17 stig og 16 fráköst og Hafþór Ingi Gunnarsson með 13 stig.  

 

Það voru Valsmenn sem hófu leikinn betur og settu 8 stig gegn fyrstu tveimur stigum gestanna.  Það mátti sjá strax á leik liðanna að mikið var undir því bæði lið voru að gera sig sek um klaufaleg mistök, bæði brot og að henda boltanum frá sér.  Skallagrímur svaraði þó fyrir sig og áttu nokkur tækifæri til þess að minnka muninn niður í tvö stig sem þeir svo gerðu þegar fjórar mínútur voru eftir af fyrsta leikhluta, 12-10.  Valsmenn svöruðu því með góðum kafla og juku forskotið í 8 stig, 20-12, en Finnur Jónsson tók þá leikhlé fyrir Skallagrím.  Valsmenn áttu hins vegar betri kafla undir lok fyrsta leikhluta og juku þetta forskot upp í 11 stig áður en flautað var til loka hans, 25-14.  

 

Skallagrímur ákvað að bregðast við sterkri byrjun Valsmanna með því að mæta í svæðisvörn í upphafi annars leikhluta.  Það virtist slá heimamenn eitthvað út af laginu því þeir skoruðu ekki stig fyrr en eftir tvær og hálfa mínútu sem Skallagrímur hefði eflaust átt að nýta sér betur.  Gestirnir settu hins vegar tvo þrista í röð á stutum kafla og minnkuðu muninn í 5 stig, 27-22.  Það var svo stuttu seinna sem Hamid Dicko jafnaði fyrir Skallagrím í stöðunni 29-29 og annar hálfleikur rétt hálfnaður.  Liðin skiptust á körfum næstu mínútur þangað til Sigtryggur Arnar kom Skallagrím yfir í fyrsta skiptið í leiknu í stöðunni 35-36.  Friðrik Þjálfi Stefánsson svaraði því með þrist hinu megin á vellinum sem reyndist seinustu stig fyrri hálfleiks, 38-36.  

 

Stigahæstur í liði Vals í hálfleik var Jamei Stewart með 13 stig og 6 fráköst en næstu menn voru Þorgeir Blöndal og Illugi Auðunsson með 6 stig hvor.  Hjá Skallagrím var Sigtryggur Arnar Björnsson stigahæstur með 12 stig en næstu menn voru Jean Rony Cadet með 11 stig og 9 fráköst og Hamid Dicko með 7 stig.

 

Bæði lið byrjuðu þriðja leikhluta nokkuð varfærnislega og höfðu aðeins skorað 2 stig á lið þegar þrjár of hálf mínúta var liðin af leikhlutanum.  Jean Rony Cadet kom Skallagrím yfir í stöðunni 40-42 og virtust gestirnir vera að ná tökum á leiknum.  Stressið lék þó bæði lið grimmt og náði því hvorugt liðið að stinga af.  Jafnt var á flestum tölum og þegar þrjár minútur voru eftir var staðan 46-46.  Það voru hins vegar gestirnir sem reyndust sterkari á lokakafla þriðja leikhluta og náðu sínu stærsta forskoti fram að því í stöðunni 48-53 með þrist frá Hafþóri Inga Gunnarssyni.  Valsmenn áttu hins vegar snögg fjögur stig á lokasekúndum leikhlutans og munaði því aðeins einu stigi þegar flautað var til loka þriðja leikhluta, 52-53.  

 

Valsmenn byrjuðu fjórða leikhluta af miklum krafti og settu 9 stig gegn fyrstu tveimur stigum gestanna, 61-55, þangað til Hafþór Ingi setti annan stóran þrist fyrri Skallagrím.  Valsmenn svöruðu því um hæl og höfðu aftur náð 8 stiga forskoti þegar Finnur tók leikhlé fyrir SKalagrím, 66-58.  Ágúst Björgvinsson tók leikhlé fyrir Valsmenn stuttu seinna en hvorugt liðið hafði þá skorað í eina mínútu og rétt rúmlega fimm mínútur til leiksloka.  Valsmenn héldu þessu forskoti næstu mínútur þrátt fyrir nokkrar góðar tilraunir gestanna.  Sigtryggur Arnar hélt uppteknum hætti á lokamínútunum og fór fyrir sínum mönnum í sókninni.  Hann setti stóran þrist þegar tvær mínútur voru eftir til þess að minnka muninn niður í 5 stig, 72-67.  Þessu fylgdu félagar hans eftir með 5 stigum á örskammri stundu og munaði aðeins 2 stigum á liðunum þegar ein mínúta var eftir, 74- 72. Valsmenn svöruðu því hins vel og settu fimm stig í röð og þar á meðal risastóran þrist frá Benedikt Blöndal.  Finnur Jónsson tók þá leikhlé fyrir Skallagrím með 44 sekúndur eftir. Elías Orri Gíslason gulltryggði svo sigur Valsmanna með því að verja næsta skot Skallagrímsmanna.  Valsmenn sigldu svo heim flottum sigri í seríu sem stefnir í að verða æsispennandi, 80-74.  

 

Myndasafn – Torfi Magnússon

Umfjöllun: Gísli Ólafsson

mynd: Torfi Magnússon

Tölfræði leiksins 

Fréttir
- Auglýsing -