HomeNeðri deildir1. deild kvennaÚtisigrarnir í aðalhlutverki í opnunarumferð 1. deildar kvenna 

Útisigrarnir í aðalhlutverki í opnunarumferð 1. deildar kvenna 

Keppni fór af stað í 1. deild kvenna í kvöld með þremur leikjum þar sem gestirnir fögnuðu sigri í tveimur þeirra.  

Á Ásvöllum hóf ungmennalið Hauka tímabilið af miklum krafti og vann afgerandi 29 stiga sigur gegn liði Aþenu, 78–49. Í Breiðholti var boðið upp á mikla spennu þar sem Keflavík b sótti nauman tveggja stiga sigur gegn ÍR, 65–63. Þá fögnuðu Blikar sömuleiðis útisigri á Selfossi þar sem Breiðablik hafði betur gegn heimakonum, 79–71.

Tölfræði leikja

Fréttir
- Auglýsing -