HomeBónus deildinBónus deild karlaSemja við serbneskan framherja

Semja við serbneskan framherja

Sindri hefur samið við serbneska framherjann Lazar Grbovic um að leika með liðinu í Bónusdeild karla á yfirstandandi tímabili.

Grbovic er 203 sentimetrar á hæð og kemur til Hornafjarðar með reynslu bæði úr bandaríska háskólaboltanum og evrópskum félagsliðum. Hann lék áður með Eastern Illinois University í Bandaríkjunum en kemur nú síðast frá Mornar í Svartfjallalandi, þar sem hann skoraði 10,2 stig og tók 6 fráköst að meðaltali í leik á síðustu leiktíð.

Í tilkynningu Sindra kemur fram að félagið bindi miklar vonir við kappann og ætlist til þess að hann komi með aukinn kraft, baráttu og líkamlegan styrk inn í leikmannahópinn í þeirri hörðu baráttu sem fram undan er í Bónusdeildinni.

Fréttir
- Auglýsing -