Gengin í raðir Vals

Leikstjórnandinn Vilborg Jónsdóttir hefur samið við körfuknattleiksdeild Vals og mun leika með liðinu í Bónusdeild kvenna.

Vilborg er uppalin í Njarðvík og varð Íslandsmeistari með liðinu árið 2022, auk þess sem hún á að baki leiki með yngri landsliðum Íslands áður en hún hélt í háskólanám til Bandaríkjanna. Í tilkynningu Vals kemur fram að félagið sé sannfært um að reynsla hennar muni styrkja bakvarðasveit liðsins verulega.

„Ég er mjög spennt fyrir því að koma til liðs við Val og þakka Jamil fyrir að treysta mér fyrir því að koma inn í liðið. Ég hlakka til þess að leggja mitt að mörkum til þess að gefa okkur sem bestan séns að sækja titilinn,“ segir Vilborg í tilkynningu Vals.

Jamil Abiad, þjálfari Vals, fagnar komu hennar og segir Vilborgu þegar hafa tengst hópnum vel og að það verði frábært að fá enn einn reynslumikinn bakvörð til að styrkja kjarna liðsins.

Fréttir
- Auglýsing -