spot_img
HomeFréttirÚrslitaleikur gegn Portúgal um sæti í A-deild

Úrslitaleikur gegn Portúgal um sæti í A-deild

{mosimage}

Í dag, laugardaginn 19. ágúst, leika U 16 ára strákarnir gegn Portúgal um hvort liðið verður annað af þeim tveimur sem falla í B-deild. Leikurinn hefst klukkan 14:30 að íslenskum tíma. 

Þrátt fyrir sex tapleiki á EM á spáni eru strákarnir að undirbúa sig fyrir úrslitaleik á morgun. Leikur númer sjö og sker hann úr um hvort að Ísland verði áfram á meðal þeirra bestu, eða falli niður í B-deildina. 

Mótherjarnir í dag eru Portúgal og hafa þeir sigrað einn leik og tapað fimm, þeir sigruðu Þjóðverja í hörkuleik og tryggðu sér þar með þriðja sætið í H-riðli og mæta því íslensku strákunum í úrslitaleik um hvort liðið heldur sér í A-deild. Í hinum leiknum eru það Þjóðverjar og Slóvenar sem leika einnig um hvort liðið heldur sér í A-deild. Stemmningin í hópnum er góð og ætla menn að fórna sér í verkefni morgundagsins, hægt verður að fylgjast með leiknum á FIBAEUROPE.COM Hjörtur Halldórsson og Pétur Þór Jakobsson ætla báðir að leika á morgun þrátt fyrir meiðsli sín og er það mikilvægt fyrir liðið. Arnþór Freyr Guðmundsson er tilbúinn fyrir leikinn, en hann snéri sig lítlilega á móti Slóveníu. 

Í B-deildinni leika Tékkland og Búlgaría annarsvegar og hinsvegar Georgía og Austurríki til úrslita um hvaða tvö lið fara uppí A-deild að ári.

 

www.kki.is

Fréttir
- Auglýsing -