HomeBónus deildinBónus deild karlaOrðið á götunni: Er David Okeke á leiðinni til Njarðvíkur?

Orðið á götunni: Er David Okeke á leiðinni til Njarðvíkur?

Samkvæmt nýjustu sögusögnunum sem bárust Körfunni til eyrna gæti ítalski leikmaðurinn David Okeke verið á leið aftur í Bónus deildina, en sterklega er orðað að hann sé að semja við Njarðvíkinga. Þetta heita slúður var meðal annars tekið fyrir í nýjasta þætti körfuboltahlaðvarpsins Run and Gun undir stjórn Maté Dalmay og Tómasar Steindórssonar.

Okeke, sem er gríðarlega öflugur og líkamlega sterkur leikmaður með reynslu úr yngri landsliðum Ítalíu, þekkir íslenska boltann út og inn eftir að hafa leikið með bæði Keflavík og Álftanesi á undanförnum árum. Fari svo að Njarðvíkingar landi leikmanninum væri það veruleg styrking á teignum hjá grænum fyrir komandi átök í deildinni.

Orðið á götunni er einungis til gamans og ef fólk hefur ábendingar um slúður skal hafa samband á [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -