HomeBónus deildinBónus deild karlaÓvægin umræða í Run & Gun: „Aldrei hafa fleiri stór félög verið...

Óvægin umræða í Run & Gun: „Aldrei hafa fleiri stór félög verið jafn ömurleg“

Það var líflegt í nýjasta þætti körfuboltahlaðvarpsins Run & Gun þar sem stjórnendur fóru mikinn og kynntu liðinn „Heitar tökur“.

Þar var skoðununum hvergi hlíft og fengu mörg af stærstu félögum, leikmönnum og þjálfurum landsins að finna rækilega fyrir því.  

Hér eru heitu tökurnar sjö sem komu fram í þættinum:

1. Fjögur efstu lið 1. deildar eru betri en fjögur neðstu lið úrvalsdeildar.  

2. McIntyre er topp 3 kani á landinu. Það er hægt að finna góða leikmenn ódýrt, þetta er ekki lottó.  

3. ÍR vinnur KR bumbu með 5 stigum – pikkfastir í 9.–10. sæti. „You go airport“ á alla sem tóku þátt í leiknum.  

4. Tindastóll er eina liðið sem getur keppt við Álftanes.  

5. Aldrei hafa fleiri stór félög verið jafn ömurleg.  

6. Emil Barja og Daníel Guðni eru einu þjálfararnir í deildinni sem eru rekanlegir.  

7. Sindri og Ármann verða að skipta út 2–3 leikmönnum, annars verður engin fallbarátta.  

Hægt er að nálgast allan þáttinn og heyra umræðuna í heild sinni á YouTube og hlaðvarpsveitum.

Fréttir
- Auglýsing -