Komið er að stóru stundinni í Iceland Express deild kvenna í dag en nú fer af stað úrslitakeppnin þar sem mætast KR og Snæfell annarsvegar og svo Haukar og Njarðvík hinsvegar. Deildarmeistarar Hamars og Keflavík sitja hjá í þessari fyrstu umferð.
Það lið sem fyrr vinnur tvo leiki í þessari fyrstu umferð kemst áfram í undanúrslitin þar sem Keflavík og Hamar bíða.
Leikir dagsins:
13:30 Haukar – Njarðvík (Ásvellir)
16:00 KR – Snæfell (DHL-Höllin)





