Nú á fimmtudaginn hófst átta liða úrslitakeppnin í WNBA þar sem fjögur efstu liðin í vestur- og austur riðlunum eru að berjast um titilinn. Efsta liðið í riðlinum tekur á móti því sem lenti í fjórða sæti og annað sætið tekur á móti því sem lenti í þriðja sæti. Það lið sem vinnur fyrst tvo leiki kemst síðan áfram í undanúrslit.
Í austur riðlinum var staðan á þennan veg í lok riðlakeppninnar:
1. Connecticut Sun
2. Indiana Fever
3. Atlanta Dream
4. New York Liberty
5. Chicago Sky
6. Washington Mystics
Í vestur riðlinum var staðan svona:
1. Minnesota Lynx
2. Los Angeles Sparks
3. San Antonio Silver Stars
4. Seattle Storm
5. Tulsa Shock
6. Phoenix Mercury
Á fimmtudaginn fóru fram tveir leikir þar sem Connecticut Sun tók á móti New York Liberty og Los Angeles Sparks tók á móti San Antonio Silver Stars.
Sun 65 – Liberty 60
Stigahæstu leikmenn Sun: ?Tina Charlese (MVP deildarinnar) 17 stig, Asjha Jones, 10 stig og Kara Lawson 9 stig.?Stigahæstu leikmenn Liberty: ?Cappie Pondexter 14 stig, Plenette Pierson 13 stig og Nicole Powell 11 stig.
Sparks 93 – Silver Stars 86
Stigahæstu leikmenn Sparks: ?Kristi Toliver 29 stig, Candace Parker 25 stig og Alana Beard 18 stig.?Stigahæstu leikmenn Silver Stars: ?Becky Hammon 19 stig, Danielle Adams 17 stig (af bekknum) og Danielle Robinson 16 stig.
Í gærkvöldi fóru síðan seinni tveir leikirnir en þar tók Indiana Fever á móti Atlanta Dream og Minnesota Lynx buðu Seattle Storm heim.
Fever 66 – Dream 75
Stigahæstu leikmenn Fever: ?Katie Douglas 13 stig, Erlana Larkins 11 stig og síðan voru Tamika Catchings (varnarmaður ársins), Briann January og Erin Phillips með 10 stig hvor.?Stigahæstu leikmenn Dream: ?Lindsey Harding 23 stig, Angel McCouchtry 16 stig og Sancho Lyttle 12 stig
Lynx 78 – Storm 70
Stigahæstu leikmenn Lynx:?Lindsay Whalen 20 stig, Seimone Augustus 19 stig og Maya Moore 16 stig.?Stigahæstu leikmenn Storm:?Shekinna Stricklen 13 stig og Lauren Jackson og Katie Smith voru með 12 stig hvor.
Í kvöld fara síðan tveir leikir fram þar sem að Liberty tekur á móti Sun og Silver Stars tekur á móti Sun. Á morgun fara síðan hinir leikirnir fram þar sem Dream tekur á móti Fever og Storm tekur á móti Lynx. Eins og áður segir þarf aðeins tvo leiki til að komast áfram svo að Sun, Sparks, Dream og Lynx þurfa aðeins einn sigur til viðbótar til að komast áfram.





