spot_img
HomeBónusdeildinBónusdeild karlaÚrslit: Tindastóll sótti sigur í Njarðvík

Úrslit: Tindastóll sótti sigur í Njarðvík

Fimm leikir fóru fram í Dominos deild karla í kvöld. Síðasta leiknum lauk rétt í þessu en leikið var í annari umferð.

Tindastóll sótti frábæran sigur í Njarðvík og náðu þar með í sinn fyrsta sigur á tímabilinu.

Keflavík vann grannaslaginn í Grindavík, Stjarnan vann öruggan sigur á ÍR líkt og KR. Valsarar unnu hinsvegar ótrúlegan sigur gegn Þór Þ þar sem liðið vann síðasta leikhluta 35-10 og sigraði að lokum.

Nánar er fjallað um leiki kvöldsins á Körfunni í kvöld.

Úrslit kvöldsins:

Dominos deild karla:

Njarðvík 75-83 Tindastóll

Grindavík 89-97 Keflavík

Stjarnan 103-74 ÍR

Valur 87-73 Þór Þ

KR 102-84 Haukar

Fyrsta deild karla:

Skallagrímur 67-97 Breiðablik

Fréttir
- Auglýsing -