Úrslitakeppnin í 1. deild karla hófst í kvöld þar sem Þór Akureyri og Valur tóku 1-0 forystu í sínum rimmum og þurfa því bara einn sigur til viðbótar til að komast í úrslitin. Valur gerði ferð til fjár með sigri gegn Skallagrím í Borgarnesi þar sem Skallarnir áttu heimaleikjaréttinn í rimmunni og Þór lagði Breiðablik fyrir norðan.
Þór Akureyri 81-72 Breiðablik
Konrad Tota og Petrushev voru báðir með 21 stig í liði Þórs en Þorsteinn Gunnlaugsson var með 19 stig og 13 fráköst hjá Blikum.
Staðan í rimmunni: Þór Akureyri 1-0 Breiðablik
Skallagrímur 91-96 Valur
Hafþór Ingi Gunnarsson og Zowa voru báðir með 20 stig í liði Skallagríms og Zowa einnig með 19 fráköst en í sigurliði Vals var Calvin Wooten með 35 stig, 6 fráköst og 8 stoðsendingar en honum næstur var Philip Perre með 25 stig og 10 fráköst.
Staðan í rimmunni: Skallagrímur 0-1 Valur
Nánar síðar…
Mynd/ Úr safni: Torfi Magnússon: Wooten fór mikinn í Borgarnesi





