HomeFréttirÚrslit: Snæfell deildarmeistari og Hamar féll

Úrslit: Snæfell deildarmeistari og Hamar féll

 
Íslandsmeistarar Snæfells eru deildarmeistarar leiktíðina 2010-2011 í Iceland Express deild karla. Snæfell var rétt í þessu að leggja Hamar að velli og KR tapaði stórt í Seljaskóla og því varð Snæfell deildarmeistari. Njarðvíkingar töpuðu svo fyrir vestan gegn KFÍ sem þegar eru fallnir í 1. deild. Þá féll Hamar í 1. deild karla með tapi sínu í Stykkishólmi. 
Úrslit kvöldsins í IEX deild karla:
 
Snæfell 76-64 Hamar
Snæfell er deildarmeistari 2010-2011. Til hamingju Hólmarar. Stigahæstur í kvöld í liði Snæfells var Pálmi Freyr Sigurgeirsson með 16 stig en hjá Hamri var Devin Sweetney með 24 stig og 8 fráköst en Hamar leikur í 1. deild á næstu leiktíð.
 
ÍR 124-96 KR
James Bartolotta gerði 33 stig í liði ÍR sem vafalítið lék einn sinn besta leik á tímabilinu í kvöld! Eiríkur Önundarson bætti við 24 stigum og Kelly Beidler gerði 22 og tók 12 fráköst. Hjá KR var Marcus Walker með 31 stig, 7 fráköst og 6 stoðsendingar.
 
KFÍ 102-97 Njarðvík
KFÍ ætlar ekki að kveðja Iceland Express deildina þegjandi og hljóðlaust. Njarðvíkingar lágu í valnum í kvöld en fyrir leikinn höfðu grænir unnið þrjá deildarleiki í röð. Richard McNutt var stigahæstur hjá KFÍ í kvöld með 21 stig og 9 fráköst en Jóhann Árni Ólafsson var atkvæðamestur í liði Njarðvíkinga með 31 stig og 8 fráköst.
 
Nánar síðar…
 
Ljósmynd/Þorsteinn Eyþórsson: Snæfell er deildarmeistari 2010-2011
 
Fréttir
- Auglýsing -