HomeFréttirÚrslit kvöldsins: Tvö stig í hús hjá KR og Hamri

Úrslit kvöldsins: Tvö stig í hús hjá KR og Hamri

KR og Hamar nældu sér í tvö góð stig í Iceland Express deild kvenna í kvöld þegar KR skelli Fjölni í DHL-Höllinni og Hamar tók á móti Snæfell í blómabænum Hveragerði.
KR 86-42 Fjölnir
Margrét Kara Sturludóttir fór fyrir KR konum með 24 stig og 12 fráköst og Sigrún Ámundadóttir bætti við 14 stigum og 13 fráköstum. Hjá Fjölni var Brittney Jones með 12 stig og Katina Mandylaris gerði 10 stig og tók 13 fráköst. Þar sem Hamar vann sinn leik náðu þær að brúa bilið milli sín og Fjölnis niður í 4 stig. Þá færði KR sig upp í 3. sætið og uppfyrir Hauka sem eiga leik til góða gegn vesturbæingum.
 
Hamar 82-57 Snæfell
Samantha Murphy átti enn einn stórleikinn fyrir Hamar með 25 stig, 8 fráköst og 5 stoðsendingar. Þá var Katherine Graham með 23 stig, 8 fráköst og 5 stoðsendingar hjá Hamri og Fanney Lind Guðmundsdóttir bætti við 14 stigum og 4 fráköstum. Hjá Snæfell var Kieraah Marlow með 15 stig og 8 fráköst.
 
Nánar síðar…
 
Mynd/ Úr safni Margrét Kara Sturludóttir fór mikinn í liði KR í kvöld.
 
 
   
Fréttir
- Auglýsing -