spot_img
HomeFréttirÚrslit kvöldsins: Tindastóll vann með flautukörfu (Uppfært)

Úrslit kvöldsins: Tindastóll vann með flautukörfu (Uppfært)

21:03

{mosimage}

Leikjum kvöldsins er nú að ljúka, á Akureyri tryggi Svavar Birgisson Tindastól sigurinn á heimamönnum með flautukörfu, 94-93. Hægt er að lesa textalýsingu af leiknum hér.

 

Keflavík vann Stjörnuna örugglega 95-78 og heldur því toppsætinu. 

Í Stykkishólmi sigruðu heimamenn í Vesturlandsslagnum, 85-77 en textalýsing af leiknum er hér. 

Þá vann Njarðvík öruggan sigur á Hamri, 120-86.

 

Þar með eru Njarðvík, Skallagrímur og Snæfell öll með 20 stig í 4. til 6. sæti og Tindastólsmenn stigu mikilvægt skref í kvöld til að bjarga sér frá falli.

 

Við erum á vaktinni

Fréttir
- Auglýsing -