21:22
{mosimage}
Keflavík tryggði sér sæti í undanúrslitum Iceland Express deildar karla í kvöld með sigri á Þór á Akureyri 86-83 eftir að heimamenn höfðu leitt lengstum. Í Borgarnesi sigruðu Skallagríms menn Grindavík 96-91 og þurfa liðin því að leika oddaleik á fimmtudag. Milojica Zekovic skoraði 36 stig fyrir Skallagrím en Adama Darboe skoraði 32 fyrir Grindavík.
Í 1. deild karla sigruðu FSU menn Valsmenn 86-74 í Vodafonehöllinni og mun því oddaleikur skera úr um hvort liðið fylgir Breiðablik í Iceland Express deildina að ári. Craig Walls var stigahæstur Valsmanna með 23 stig en Matt Hammer skoraði 17 fyrir FSu. Oddaleikurinn fer fram á föstudag á Selfossi.
Meira síðar