HomeNeðri deildirBæjarins Beztu deild karlaSnæfell sótti mikilvægan útisigur í Hveragerði

Snæfell sótti mikilvægan útisigur í Hveragerði

Snæfell vann góðan 84–78 útisigur gegn Hamri í 8. umferð Bæjarins beztu deildar karla í Hveragerði í kvöld.

Gestirnir úr Stykkishólmi byrjuðu mun betur og leiddu 26–12 eftir fyrsta leikhluta. Hamar svaraði með öflugum öðrum leikhluta (26–13) og munaði aðeins einu stigi í hálfleik, 39–38 fyrir Snæfell. Í seinni hálfleik hélt Snæfell hins vegar frumkvæðinu og landaði sínum öðrum sigri á tímabilinu.

Srdan Stojanovic var stigahæstur hjá Snæfelli með 21 stig og 6 fráköst, Keylane Lasisi skoraði 16 stig og tók 12 fráköst og Hjörtur Jóhann Sigurðsson skilaði 15 stigum. Hjá Hamri var Joshua Hardiman stigahæstur með 20 stig og 8 fráköst, á meðan Jose Medina átti stórleik með 19 stig og 14 stoðsendingar.

Með sigrinum fer Snæfell upp í 4 stig í áttunda sæti deildarinnar og jafnar Hamar að stigum í níunda sætinu.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -