Það var háspenna lífshætta í leikjum kvöldsins þegar sjötta umferðin í Iceland Express deild karla rúllaði af stað. Fjölnismenn unnu seiglusigur á KR, Keflvíkingar lögðu Þór Þorlákshöfn með flautukörfu og Tindastólsmenn fundu sín fyrstu stig eftir nauman sigur í Síkinu á Val.
Úrslit kvöldsins:
Fjölnir 100-96 KR
Calvin O´Neal gerði 31 stig í liði Fjölnis og Nathan Walkup bætti við 27 stigum og 14 fráköstum. Hjá KR var David Tairu með 25 stig og 8 fráköst og Edward Horton bætti við 24 stigum og 7 stoðsendingum.
Keflavík 93-92 Þór Þorlákshöfn
Charles Parker var hetja Keflavíkur í kvöld með flautukörfu eftir stoðsendingu frá Arnari Frey Jónssyni. Magnús Þór Gunnarsson var stigahæstur Keflvíkinga annan leikinn í röð með 26 stig en hjá Þór var Darrin Govens með 26 stig.
Tindastóll 89-82 Valur
Trey Hampton og Maurice Miller gerðu báðir 21 stig í liði Stólanna og Friðrik Hreinsson bætti við 20 stigum. Hjá Val var Garrison Johnson með 23 stig og Darnell Hugee bætti við 19 stigum.
Mynd/ [email protected] – Árni Ragnarsson í slagnum gegn KR í kvöld.




