HomeFréttirÚrslit: KR og Grindavík taka forystuna

Úrslit: KR og Grindavík taka forystuna

 
KR leiðir einvígið gegn Njarðvík 1-0 og sömuleiðis eru Grindvíkingar komnir 1-0 yfir í sínu einvígi gegn Stjörnunni í 8-liða úrslitum Iceland Express deildar karla. KR lagði Njarðvíkinga 92-80 í kvöld og Grindavík lagði Stjörnuna 90-83.
KR 92-80 Njarðvík
Marcus Walker fór á kostum í síðari hálfleik þar sem hann skoraði 27 stig og lauk leik með 33 stig í liði KR-inga. Hann var einnig með 6 fráköst, 5 stoðsendingar og 4 stolna bolta. Hjá Njarðvíkingum var Jonathan Moore með 20 stig og 11 fráköst og Giordan Watson gerði 12 stig.
KR 1-0 Njarðvík
 
Grindavík 90-83 Stjarnan
Mladen Soskic gerði 20 stig í liði Grindvíkinga en fimm leikmenn Grindavíkur gerðu alls 12 stig eða meira í leiknum. Justin Shouse var stigahæstur í liði Stjörnunnar með 21 stig og 9 fráköst en fimm leikmenn Stjörnunnar voru með 10 stig eða meira.
Grindavík 1-0 Stjarnan
 
Nánar síðar…
 
Mynd/ Marcus Walker fór á kostum í liði KR í kvöld.
 
Fréttir
- Auglýsing -