HomeFréttirÚrslit: Keflavík jók muninn í fjögur stig á toppnum

Úrslit: Keflavík jók muninn í fjögur stig á toppnum

Tveir leikir fóru fram í Iceland Express deild kvenna í kvöld og mörkuðu þeir lok átjándu umferðar og því tíu umferðir eftir af venjulegri deildarkeppni. Keflavík hefndi ófaranna í bikarnum með sigri á Njarðvík í Ljónagryfjunni og Haukar skelltu Valskonum í Schenkerhöllinni í Hafnarfirði.
Njarðvík 62-68 Keflavík
Jaleesa Butler fór á kostum í liði Keflavíkur með 35 stig og 18 fráköst og Pálína María Gunnlaugsdóttir bætti við 12 stigum og 4 stoðsendingum. Hjá Njarðvíkingum var Lele Hardy með 25 stig og 15 fráköst og Shanae Baker-Brice bætti við 20 stigum og 11 fráköstum.
 
Haukar 84–66 Valur
Spennandi leikur í 30 míúnútur en Haukar voru algerlega einráðar í fjórða leikhluta. Íris Sverrisdóttir var stigahæst hjá Haukum með 24 stig, Jence Rhoads bætti við 21 stigi, 9 fráköstum og 11 stoðsendingum og þá var Margrét Rósa Hálfdánardóttir með 19 stig. Melissa Leichlitner var stigahæst í liði Vals með 22 stig, 6 fráköst og 6 stoðsendingar og María Ben Erlingsdóttir, Guðbjörg Sverrisdóttir og Kristrún Sigurjónsdóttir bættu allar við 9 stigum.
 
Nánar síðar…
 
 
   
Fréttir
- Auglýsing -