spot_img
HomeFréttirÚrslit: Hvergerðingar fyrstir til að leggja KFÍ – Blikar í 2. sætið

Úrslit: Hvergerðingar fyrstir til að leggja KFÍ – Blikar í 2. sætið

Keppni í 1. deild karla hófst í kvöld þar sem Breiðablik tók á móti Ármenningum og topplið KFÍ heimsótti Hamar í blómabæinn Hveragerði. Skemmst er frá því að segja að Hamar varð fyrst liða til að leggja KFÍ að velli þetta tímabilið og Blikar lönduðu tveimur stigum í Smáranum sem skilaði þeim upp í 2. sæti deildarinnar.
Lárus Jónsson spilandi þjálfari Hamars gerði sigurstig sinna manna af vítalínunni í kvöld þegar 19 sekúndur voru til leiksloka. Lárus breytti þá stöðunni í 81-78 og í næstu sókn gestanna brutu Hvergerðingar á þeim og sendu þá á línuna, Craig Schoen setti niður bæði vítin en það minnkaði muninn bara í 81-80 sem urðu lokatölur.
 
Úrslit kvöldsins:
 
Breiðablik-Ármann 92-78 (23-14, 23-24, 26-12, 20-28)
 
Breiðablik: Ágúst Orrason 17/4 fráköst, Hraunar Karl Guðmundsson 13/6 fráköst, Atli Örn Gunnarsson 11/7 fráköst, Þorsteinn Gunnlaugsson 10/9 fráköst, Arnar Pétursson 9, Snorri Hrafnkelsson 8, Rúnar Pálmarsson 8, Ægir Hreinn Bjarnason 5, Hákon Bjarnason 4/4 fráköst, Hjalti Már Ólafsson 3, Sigmar Logi Björnsson 2, Þorgrímur Guðni Björnsson 2.
 
Ármann: Halldór Kristmannsson 19/5 fráköst, Jón Rúnar Arnarson 14, Helgi Hrafn Þorláksson 9/7 fráköst, Árni Þór Jónsson 8, Sverrir Gunnarsson 7, Egill Vignisson 6/5 fráköst, Vilhjálmur Theodór Jónsson 5/4 fráköst, Brynjar Þór Kristófersson 5, Eiríkur Viðar Erlendsson 3, Sigurbjörn Jónsson 2, Snorri Páll Sigurðsson 0, Birkir Heimisson 0.
 
Hamar-KFÍ 81-80 (13-16, 27-20, 27-21, 14-23)
 
Hamar: Louie Arron Kirkman 19/5 fráköst, Halldór Gunnar Jónsson 14, Svavar Páll Pálsson 13/6 fráköst, Ragnar Á. Nathanaelsson 12/8 fráköst, Lárus Jónsson 10/5 fráköst, Björgvin Jóhannesson 4, Emil F. Þorvaldsson 4, Bjartmar Halldórsson 3, Stefán Halldórsson 2/5 fráköst, Eyþór Heimisson 0, Mikael Rúnar Kristjánsson 0, Kristinn Hólm Runólfsson 0.
 
KFÍ: Christopher Miller-Williams 32/7 fráköst, Kristján Andrésson 19, Ari Gylfason 15, Craig Schoen 6, Edin Suljic 5, Sigurður Orri Hafþórsson 3, Jón H. Baldvinsson 0, Hlynur Hreinsson 0, Leó Sigurðsson 0, Óskar Kristjánsson 0.
 
Mynd/ Lárus Jónsson spilandi þjálfari Hamars gerði sigurstig sinna manna í kvöld.
 
Fréttir
- Auglýsing -